22.08.2006 13:19:08 / unnur

Jæjaaa.......

Margir ekki ennþá búnir að átta sig á því að ég er komin með NÝJA BLOGGSÍÐU!!!!!

Ég er búin að hreinsa allt út af þessari síðu, þ.e.a.s. alla tengla, það er allt á nýju síðunni sem er :

http://www.unnz.bloggar.is

Mikið flottari síða en þessi!

Tími til kominn að move on, forget the past people!!!

http://www.unnz.bloggar.is

http://www.unnz.bloggar.is

http://www.unnz.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 21:53:21 / unnur

NÝTT BLOGG!!!!!!!!!!!!

ER KOMIN MEÐ NÝJA BLOGGSÍÐU!

ALLIR AÐ SKOÐA 8)

http://www.unnz.bloggar.is

SJÁUMST!


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 15:23:57 / unnur

WOOOOOOOOOWWWW!!!

Nei ég meina.. Í ALVÖRU SKO!!!! Hverjum myndi EKKI LANGA að liggja á þessari strönd með kokteilinn.. jahh eða bjórinn??? Bjórinn sem kostaði skid og ingenting??

Mig langar.. Enda mun ég líka liggja þarna eftir 4 MÁNUÐI!!

Nú er að duga eða drepast krakkabjánar, PÖNTUÐ VERÐUR FERÐ Í NÆSTU VIKU!!

Ekkert slæmt skooo....


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 14:51:52 / unnur

Fáviti!!!

Ég held að þetta höfuðhögg hafi verið aðeins alvarlegra en það leit fyrst út fyrir að vera!! Ég fröken “ætla ekkert að djamma um helgina” endaði á TVEGGJA DAGA FYLLERÍI!! Fæ líka heldur betur að finna fyrir því í dag! Þurfti að berja mig í hausinn, hella köldu vatni á mig og öskra upp í eyrað á mér í morgun!! ... eða ímyndaði ég mér það bara...?? Staulaðist í vinnuna og hér sit ég með magapínu og svimaköst!!! Mánudagsógeð!

Að sjálfsögðu er þetta ekki sjálfri mér að kenna... ekki dróg ég sjálfa mig á djammið.. oooo neeiiii!!! Valgeir, Framsókn og Eyrún eru sökudólgar vikunnar! En ég er búin að fyrirgefa þeim, ég skemmti mér svo helvíti vel :D

Græna kvöldið heppnaðist vel.. fyrir utan það að ég þurfti að pissa í sama klósett og allir fullu karlmennirnir gerðu! Ekki myndi ég vilja vera ræstitæknir á skemmtistað.. eeewww...!! Eftir að fría búsið kláraðist á plebbastaðnum röltum við yfir á Auliver, allt fallega og skemmtilega fólkið saman komið á einn stað :D Labbaði heim til mín seint og síðar meir með stuttu stoppi á laugarveginum þar sem ég hjálpaði bjargarlausum karlmanni sem grét eins og smábarn út af ömmu sinni.. greyið. En löggumanninn kom og hjálpaði honum heim.

En þar sem ég kom út á sléttu þetta fagra föstudagskvöld.. eyddi ekki einni krónu.. ákvað ég að halda upp á það á laugardeginum ;) Stelpurnar komu heim til mömmu og pabba grilluðum besta mat í heimi og lágum svo í pottinum þangað til við urðum að litlum rúsínum! Hentumst í djammgallann og á Auliver aftur! Fæ örugglega bráðum Gull V.I.P. kort! Það eina merkilega sem gerðist og er frá sögu færandi er að ég og Eyrún tókum leigubíl saman heim og deildum hjónasænginni!! Ég held að það hafi bara ekki gerst síðan... já..!

Héðan í frá ætla ég ekki að koma með einhver innantóm loforð um edrú helgar.. ég virðist svíkja þau hvað eftir annað!! Sorryyyy.... :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 17:30:41 / unnur

Föstudagur JESS!!!!!!

ELSKA FÖSTUDAGA! Ákvað að gera þennan föstudag skemmtilegri en aðra og fór fyrr úr vinnunni rúllaði inn í kringlu OG LABBAÐI Á HURÐ!!!! 8|Guð minn góður! Hvernig er hægt að LABBA Á HURÐ??? Þið hafið heyrt að maður á ekki að keyra og tala í símann.. jáhh... ekki labba og senda sms þá labbar maður á hurð Í KRINGLUNNI!!!! Og ég var ein í þokkabót svo ég þurfti að labba í gegnum alla kringluna bítandi í vörina á mér svo ég myndi ekki missa mig úr hlátri!! Þá fyrst hefði fólk haldið að ég væri eitthvað vangefin!

Í kvöld mun ég dressa mig upp í grænt, drekka græna bollu frá græna flokknum, a.k.a. Framsókn!! Ætla samt EKKI á djamm.. ! Lofa!! Nenni ekki öðrum móralsdegi! ;) Á morgun munum við stelpurnar, La Chicas 8), liggja í pottinum og grilla :D Enn og aftur... ekkert djamm.. bara tjill :D

Yndisleg helgi framundan :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 12:53:07 / unnur

LEEEEETIIIIIIII..........!!!!!!!!

Djöfull er ég LÖT! Af hverju verður maður latur? .. Eða ég ætti kannski frekar að spyrja mig af hverju er ÉG löt??

Ég var að koma úr fríi þar sem legið var í leti og bókstaflega EKKERT gert nema vakna, borða, fara niðrá strönd, borða, sturta, borða, sofa, vakna, borða.. osfrv! Ég ætti að vera búin með letikvótann minn! But nooooo.... Verum bara löt áfram, deyjum bara leti fyrst við erum byrjuð á þessu á annað borð! Ég þarf að setja í þvottavél.. ég nenni því ekki því þá þarf ég að fara út náttfötunum.. sem ég nenni ekki. Ég þarf líka að setja sumardekkin á bílinn... sem ég nenni ekki því þá þarf ég líka að fara úr náttfötunum!! Ég þarf að borða.. en ég nenni því ekki því þá þarf ég að standa upp!

 

Ætti ég að fá mér AU-PAIR?? Svona öðruvísi Au-pair.. Í starfinu fælist að þrífa íbúðina, þrífa mig, klæða mig, gefa mér að borða og sjá um allt sem viðkemur mínu daglega lífi. Viðkomandi þarf að geta byrjað STRAX ... NÚNA! Ekki góð laun í boði!


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 15:39:48 / unnur

Ég skaut Birgittu Haukdal af því að mamma sagði mér að gera það!!

Tell me:D

Veldu mánuðinn sem þú fæddist

Janúar- Ég drap

Febrúar- Ég sló

Mars- Ég svaf hjá

Apríl- Ég horfði á

Maí- Ég fróaði mér með

Júní- Ég slefaði á

Julí-Ég hló að

Ágúst- Ég stakk

September- Ég skaut

Október- Ég naut ásta með

Nóvember- Ég handtók

Desember-Ég kúkaði á

Veldu núna afmælisdaginn þinn-

1. Hóru

2. Kærasta/una þína

3. Konu með HIV

4. Kynæsandi Dverg

5. Jólasvein

6. Playboykanínu

7. Giftri móðir

8. Kennara

9. Mömmu þína

10. Páskahérann

11. Köttinn

12. Djöflinum

13. Asískum skiptinema

14. Jónsa í svörtum fötum

15. Grjót

16. Hund

17. Klámstjörnu

18. Þvagprufu

19. Pung

20. Húsið þitt

21. Svín

22. Lampa

23. Kúk

24. Davíð Oddson

25. 50 cent

26. Kynskipting

27. Yddara

28. Birgittu Haukdal

29. Bjór

30. Tappatogara

31. Stólpípu

Veldu Þriðja stafinn í föðurnafninu þínu -

A- Af því að ég elska súkkulaði

B- Af því að mér leiddist

C- Af því að buxurnar mínar voru of þröngar

D- Af því að þarf alltaf að prumpa

E- Af því að hjartað mitt er tveim nr of lítið

F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin

G- Af því mér finnst egg góð

H- Af því að ég er á sýru

I- Af því ég misteig mig

J- Af því ég er með vörtu

K- Af því mér líkar Cheer

L- Af því að ég var skökk/skakkur

M- Af því ég var full/ur

N- Af því að mamma sagði mér að gera það

O- Af því ég er hýr

P- Af því ér er einmanna

Q- Af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast

R- Af því að ég er gröð/graður

S- Af því mig langar að deyja

T- Af því ég hata skóla

U- Af því ég þarf að fróa mér

V- Af því að ég elska náttfata party

W- Af því að það róar mig

X- Af því að ég elska marmelaði

Y- Af því að ég elska prump

Ö- Af því ég er að safna rassahárum


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 20:32:58 / unnur

Spanarkvedjur...:D

Jaeja bornin min... Kannski komin timi a sma kvedju hedan ur hitanum... Er varla ad trua tvi ad eg se ad farad koma heim!!!!!! Finnst eins og eg se buin ad vera herna i tvo daga, time flies when you´re having fun ;)

Buid ad vera aedislegt fri, bara buin ad vera ad liggja i leti og njota tess ad vera til. Hitinn er temmilegur og skyin hafa alveg latid sja sig.. sem er alveg agaett annars myndi eg bara stikna og deyja!!!

Bjarki brodir atti afmaeli sidasta laugardag. Tad var algjorlega hans dagur!! Vid Astros voknudum "snemma" blesum blodrur og hlupum med fangid fullt af blodrum i herbergid til hans tar sem hann la sofandi og hentum blodrunum i hann og oskrudum TIL HAMINGJU ME AFMAELID og hlupum svo yfir til okkar... Vorum ad sjalfsogdu bunar ad dekka upp tetta fina afmaelisbord med koku og finheitum :D Eiga ekki allir svona godar systur eins og okkur;) hehe... Forum i Tivoliid og eyddum deginum tar og ut ad borda um kvoldid.. Forum reyndar ut ad borda oll kvold, en hann fekk ad velja stadinn... og valdi vel:D

Madur finnur ekkert fyrir paskunum herna.. Allt opid - Paskadagur og Fostudagurinn langi bara eins og allir adrir dagar.. Sem betur fer tokum vid paskaegg med okkur ut.. Annars hefdum vid bara misst af paskunum.. hehe..

A morgun forum vid svo til AFRIKU:D:D:D:D:D:D  VÍÍÍÍÍÍ...... Tad verdur geggjad. Keyrum i c.a. 2 tima og svo tekur vid klukkustunda ferjuferd og voila!!! AFRIKA! Ekki langt ferdalag tad;) Vid krakkarnir og Mutta pontudum tessa dagsferd til Marokko... en mamma greyid er ordin lasin svo eg veit ekki hvort hun komi med :( greyid!

Ferdin i grofum drattum:

  • Sa tunglid um daginn i gegnum sjonauka... GEGGJAD. Tok mynd af tvi a myndavelina...
  • Horfdi a Pretty Woman a spaensku... SPES!
  • Hurdahunninn DATT AF hurdinni okkar
  • Buin ad lifa a samloku med skinku og ostu og fronskum... AELUM!
  • For i fjallgongu
  • Sa Golden Eagle (Alvoru fugl sko)
  • Sa islenska stelpu keppa i einhverri danskeppni a BBC .. eg helt med henni en hun datt ut :(
  • Steikja mig a bekkjunum uti...
  • Tala islensku vid allt starfsfolkid a hotelinu! 8|

Tad sem eg aetla ekki ad gera tegar eg kem heim:

  • Borda samloku sem skinku og osti og franskar
  • Fara i ljos

Jaeja kominn hattatimi.. aetla ad vera fersk i Afriku...

Tangad til seinna ... Hasta luego


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 10:35:41 / unnur

SPAIN HERE I COMEEEE.....

 

 

ELVIS HAS LEFT THE BUILDING!


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 11:09:17 / unnur

ÓKEEEEEEEEEIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII..............!!!!!!

Bara svo það fari ekki framhjá NEINUM þá verður HELJARINNAR DJAMM LAUGARDAGINN 22 APRÍL, ég endurtek 22. APRÍL!!!!!!!!! Er þá búin að sleppa úr 6 djömmum!!!!! Er varla að trúa því sjálf8|

22. APRÍL

22. APRÍL

22. APRÍL

22. APRÍL

22. APRÍL

 

 

TAKIРKVÖLDIÐ FRÁ

 

PARTÝ Í HÖLLINNI!

 

 

ALLIR AÐ MÆTA!


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 17:05:15 / unnur

Hmmm....

How Will I Die Quiz



You will die at the age of 98

You will die by drowning in your own body sweat

Find out how you will die at Quizopolis.com

 

 



Já.. ég hef nú alltaf vitað að ég ætti eftir að lifa lööönguuu lífi, en hef alltaf verið frekar forvitinn um minn eigin dauðadaga.. Athyglisverður dauðadagi.. en skiljanlegur þar sem ég ætla að eyða mínum elli-gigtar árum í Tælandi þá er kannski ekki nema von að maður drukkni í eigin SVITA(það er soldið heitt í Tælandi skooo)!!! Hversu ógeðslegt er það samt???

Íriiiiiiiiisssss á ammæli í dag! VÚHÚ KÖKUPARTÝÝÝÝ nammmmmm.......

Hún á afmæl’í dag, hún á afmæl’í dag, hún á aaaaafmæææææl’ún ÍÍÍÍÍÍRIIIIIIIIIS..... Hún á afmææææl’í daaaaaaaaaaaaag..................

Svo á einn af mínum bestustu bræðrum afmæli á laugardaginn 1.APRÍL!!1 Tvítugur keeeeeppppinnn!!! Og þar sem hann er orðinn SVÍI eins og meirihlutinn af familíunni þá höfum við systurnar ákveðið að skella okkur í ríki Svíanna á föstudaginn og fagna þessum MERKA ÁFANGA HANS:D Hlakka ekkert smá til að fara og knúsa hann og frænku mína, bumbubúann, Aron Már litla frænda og að sjálfsögðu Brynjar best vin minn:D Kem heim á sunnudaginn OOOOOOOOOOOOOOG fer svo út til SPÁNAR KRAKKAR LAUGARDAGINN EFTIR :D:D:D:D:D:D:D Já endalaus gleði og hamingja á mínum bæ í augnablikinu :D víííí..........

 

 




» 10 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 18:55:28 / unnur

THE BOWLING CHAMP!!!!

Jájá, núna er það satt og sannað, KLÁRT OG KANNAÐ að ég er LAAAAANG best í keilu!!! Ég rúlla þessu upp hvað eftir annað, og sigra karlpeninginn hvern á fætur öðrum! Annað hvort er ég svona hrikalega góð  í keilu.. eða sumir svona hrikalega lélegir.. og svona ykkur að segja þá held ég að það sé það síðarnefnda sem veldur þessu! Ég hef alltaf sökkað BIG TIME í keilu, þangað til ég fór að fara með hinu kyninu, þá kom þessi leyndi hæfileiki í ljós.  Mér líður svo vel í mínu litla hjarta... hehe...

Það hefur ósköp lítið á daga mína drifið, mætti farað kalla mig fyrrverandi djammara!! 8| Hef ekki djammað síðan 1700 og súrkál! Skil ekki hvað gengur að mér!
Þessi helgi var algjörlega tileinkuð minni elskulegu fjölskyldu, sem ég hef kannski
sniðgengið eilítið að undanförnu. En þau fengu vænan skammt af mér núna um helgina.. Við systurnar elduðum gómsæta pitsu ofan í liðið á föstudaginn.. eina meirað segja  hjartalaga :D glápt á idol og borðað ÚT Í EITT!!! Það er eiginlega það merkilegast sem ég gerði um helgina...Lá í leti, lá í bleyti, lá í sukki!! Það vill stundum verða mitt mottó!!

   13 DAGAR Í SÓL OG SUMARYL!!!!! 8)

Hasta la vista beibeee.....


» 12 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 15:23:14 / unnur

Þrjár vikur í SPAIN beibeee......

Já krakkar mínir.. eftir akkúrat 3 vikur verð ég á SPÁNIIII... eða kannski í flúvélinni á LEIÐINNI TIL SPÁNAR. Á Spáni er gott að djamma og djúsa diskótekunum á, HEY! Vá hvað ég er orðin spennt að komast út í frí :D:D:D víííí....

Skellti mér Á Idol í gær, óggisslega gamaaan og fékk þússt eiginhandaáritun frá ÖLLUM, ó mæ gad sko.. DJÓK HAHA..  En án gríns að þá var þetta bara svaka gaman að sjá þetta svona í alvörunni, hehe.. Skil samt ekki af hverju hann Alexander var rekinn!! Og hvað er hann Znorró að gera þarna????. Ég hélt kannski í gær að þetta hafi hljómað eitthvað betur í sjónvarpinu því mér fannst Alexander mikluuuuuu betri... en já... Ekki sátt..

Stefnir í rosalegan gelluhitting í kveld í höllinni minni fögru:D Ætlum að hittast stelpurnar úr Öldutúnsskóla, Eylún mom, ÍbbaGogg, Lára (Lárus sem ég elska svo ofur ofur heitt :)) Ásdís a.k.a Stacy og Jóna Monza .. Hulda Bóndi er lasin :( hennar verður sárt saknað... Ætlum að sötra hvítt, borða ost og rifja upp gömlu góðu dagana :D Þetta verður geggjað fjör:D:D:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 17:36:38 / unnur

Íslensk deitmenning...

Mér finnst búið að vera mikið í umræðunni undanfarið um íslenska deitmenningu. Margir ganga það langt að segja að það sé ENGIN deitmenning á Íslandi.. Ef það er ENGIN deitmenning hérna, af hverju heitir þetta þá "Íslensk Deitmenning"?? Auðvitað er deitmenning hérna, hún er bara öðruvísi en almennt tíðkast í Ameríkunni. Ég skil ekki af hverju við þurfum að apa allt eftir ameríkönunum. Við tölum alltaf um hvað ameríkanar eru furðulegir, væmnir, heimskir o.s.frv. en samt viljum við vera alltaf eins og þeir!! Ég er ekkert svo allt of viss um það að við viljum hafa sömu deitmenningu og þeir.. Maður er kannski í sínu mesta sakleysi í bónus að versla svo labbar upp að manni maður og kemur með einhverja slísí pikk öpp línu og biður svo um númerið manns, eða gengur jafnvel það langt að bjóða manni bara á deit!!! Ég myndi halda að þessi maður væri STÓRFURÐULEGUR og afþakka boðið PENT!! Af hverju er þetta eitthvað meira spennandi "deitmenning" en þessi ekta íslenska sem við höfum?

Við erum alltaf að hreykja okkur af þessu fallega landslagi sem við höfum, jöklunum, eldfjöllunum, jarðhitanum og öllum sem er svo sérstakt við Ísland. Hreykjum okkur meirað segja af öllu fallegu konunum sem búa hérna og djammlífinu. Af hverju ekki að hreykja okkur af okkar sérstöku deitmenningu... ?? Haldiði að hún sé eitthvað öðruvísi í Svíþjóð eða Danmörku?? Af hverju að bera okkur alltaf saman við Ameríku, Ameríku sem við erum alltaf að gera grín að??

Hvað er að því að hitta strák á djamminu láta hann fá númerið sitt og fara svo á deit seinna meir? Er það eitthvað öðruvísi en að hitta einhvern í bónus?? Þetta endar hvort eð er alltaf á sama stað. Annað hvort endar fólk saman eða ekki... Það er ekkert þar með sagt að þótt þú hittir gaur einhvers staðar annars staðar en á djamminu að það muni endast eitthvað frekar..

Af hverju að vera að velta sér upp úr þessu, af hverju við séum með svona deitmenningu.. Við erum íslensk og höfum okkar eigin menningu. Væri eitthvað gaman af þessu ef það væri sama menningin alls staðar?


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 19:19:59 / unnur

Árshátíð fátæka fólksins..

Vá ég held að það hafi verið slegið komment met á þessari síðu minni við síðustu færslu.. Greinilega viðkvæmt umræðuefni sem margir hafa einhverja skoðun á, sem er gott mál!

Um helgina var árshátíð FÍ í Glasgow og mín fór EKKI!! Jejeje... Halló, ég er að fara til TÆLANDS sko.. þá þýðir ekkert að vera kærulaus og skella sér til GLASGOW sí sona.. En við eimingjarnir sem sátum eftir á klakanum ákváðum samt að sitja ei með hendur í skautum heldur héldum okkar EIGINS árshátíð í höllinni góðu :D

Ég fór snemma heim úr vinnunni á föstudaginn til að sjæna allt og gera allt reddí.. Unnur, fröken sjálfstæð, þarf sko engann kk inn á mitt heimili, get gert ALLT SJÁLF. Fór næstum því að efast um það þegar kom að því að gera ídýfuna góðu... gat ekki opnað salsa krukkuna!! 8| Var farin að halda að ég þurfti að farað auglýsa eftir karlkyns meðleigjanda...  “Karlkyns meðleigjandi óskast hið fyrsta, verður að geta opnað salsakrukkur og eiga borvél”! Aldeilis kröfurnar sem maður gerir... En sem betur fer tókst mér að sanna sjálfstæði mitt enn eina ferðina, ég gat opnað krukkuna fyrir rest og matreitt þessa dýrindis ídýfu :D vííí.... Er svo sterk, úffff...... Tókst reyndar að skera puttann næstum AF MÉR og setti smá blóðslettu í ídýfuna, ákvað að hafa smá “möndlugjöf” ...eða blóðgjöf eins og Brynja kom að orði.. hehe ÓJ!! Pöntuðum pítsu (fréttum það svo að það var sko betri matur en árshátíðarmaturinn), horfðum á Idol og drukkum okkur í hel.. hehe... Mjög fínt kvöld :D

Á laugardaginn var ég bara í einhverju móki.. veit ekki hvað var í gangi.. svaf bara allaaaaaaan daginn og gat ekki hreyft legg né lið.. eða gat ekki, NENNTI EKKI!! Var því lítið um gleði hjá mér á laugardagskvöldið!

Náði aðeins að sofa úr mér letina og var allavega ekki alveg jafn löt á sun. Við hjónin skelltum okkur svo í vinabæ á sun.kvöldið ... Okkur var farið að vanta vini, vildi reyndar enginn vera vinur okkar og enduðum í margra klukkustunda bingói!! Það er alltaf gaman í bingó, Eyrún meirað segja VANN... næstum því tvisvar.. en tölum ekkert um það... hehe




» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11